Jólin koma líka í KenyaVera Rut Ragnarsdóttir
Rauð jól hafa aldrei verið efst á vinsældarlistanum hjá mér. Stemningin að vaka frameftir á Þorláksmessu og sjá hvernig nýfallin mjöllin færir trén í jólabúning er engu lík. Hér snjóaði ekki aðfararnótt aðfangadags né lét dagrenningin á sér standa um 6 leitið. Aðfangadagur var þó hefðbundinn að því leitinu til að við hjónin nýttum morguninn til síðbúinna jólagjafakaupa samhliða því kaupa sitt hvað matarkyns svo jólahaldið mætti vera fullkomnað.
Við fjölskyldan höfðum reyndar velt því nokkuð fyrir okkur að leggjast í ferðalög yfir hátíðarnar og létum okkur dreyma um að skoða eitt af heimsundrunum 7 í Egyptalandi.
Jólin myndu hvort eð er fara forgörðum þetta árið, enginn snjór, ekkert skammdegi og áreitið af markaðsmaskínunni í algjöru lágmarki. Við áttuðum okkur þó fljótlega á því að hér eru það aðilar í ferðaiðnaðinum sem gera sér mat úr jólunum. Verð á gistingu og flugi hækkar all verulega á þessum árstíma. Vikuferð til Egyptalands leggst á góða 6.000 dollara fyrir okkur fjögur og var því snarlega hætt við öll slík áform. Þess í stað skelltum við okkur til Mombasa og dvöldum þar vikuna fyrir jól.
Það eru 520 km frá Nairobi til Mombasa en vegurinn bara nokkuð góður. Það tók okkur því ekki nema 7 klukku-stundir að keyra þetta.Vera Rut fór til móts við félaga sína úr kirkunni okkar - Nairobi Pentecostal Church Parklands - sem voru á unglingamóti á hóteli á Bamburi ströndinni sem tilheyrir norðurströnd Mombasa. Hótelið var nú kannski ekki nema 2ja stjörnu en ég er minnug þess að maður gerði sig nú bara glaðann með Saltvík hérna um árið.
Við Raggi og Jakob Vífill vorum hins vegar í vellystingum á Shé Shé sem staðsett er á suðurströndinni nánar tiltekið á Tiwi ströndinni. Þetta er staður sem við getum hæglega mælt með og ekki úr vegi að við gistum þarna einhvern tíma aftur. Þetta er tiltölulega lítil eining sem rúmar um 70 gesti og þjónustan mjög persónuleg og notaleg. Það vakti fljótt athylgi okkar að allir aðrir gestir reyndust ítalskir. Eigendurnir hafa gert samning við ítalska ferðaskrifstofu sem kaupir upp alla gistingu þarna yfir háannatímann og þjónusta sniðin að ítölum. Mátti vart á milli sjá hvort við værum í Kenya eða á Ítalíu.
Ferðin til Mombasa var í og með til að kanna hvort við gætum hugsað okkur að deyja þar, eins og Jahangir vinur okkar orðar það svo skemmtilega. Reyndar kom á daginn að fyrir honum jafngildir það 4-5 ára skuldbindingu.
Mombasa er önnur stærsta borg Kenýa og gegnir gríðar mikilvægu hlutverki sem eina hafnarborgin. Borgin sjálf er á eyju og byggingarland því takmarkað en byggðin teygir sig með ströndinni hvort heldur til norðurs eða suðurs. Þarna við ströndina gætir mjög arabískra áhrifa og má nefna að um tíma var Mombasa stjórnað af Soldáninum af Oman. Við ströndina er Islam ríkjandi og má finna ríflega 50 moskur í Mombasa einni meðan meiri hluti þjóðarinnar er kristinnar trúar. Annað sem auðkennir mannlífið við ströndina er að hér hafa menn varðveitt tunguna og tala hreint Swahili eða Kiswahili eins og tungumálið nefnist. Í Nairobi er málið orðið mjög mengað af ensku auk þess sem alls kyns slangur og styttingar viðgangast.
Við skoðuðum nokkur hótel og veitingastaði þarna og erum að bræða með okkur framhaldið. Ég er nú kannski ekki sannfærð um að þarna vilji ég bera beinin en ég gæti alveg hugsað með að verja einhverjum tíma þarna.
Möguleikarnir í ferðamannaiðnaðinum er nánast ótakmarkaðir.
Við eyddum síðustu tveimur dögunum á hóteli á Bamburi ströndinni. Þar eru ferðamenn frá Evru-landi svo Bretlandi í miklum meirihluta. Hér í Nairobi sjáum við gjarnan eldri karla, hvíta á hörund, í fylgd þeldökkra yngismeyja. Við ströndina sáum við hins vegar fjölmörg pör þar sem daman virtist vera nokkuð við aldur en karlinn vart af barnsaldri auk þess sem hörundslitur hans var áberandi dekkri en dömunnar.
Má vera að þarna fari Evrópskar konur sem hafi lengi haft í hyggju að ættleiða drengi frá Kenya en þar eð dráttur hafi orðið á, hafa bæði elst nokkuð. Annað sem kemur til er að enn sannist að Morgunblaðið lýgur ekki og að þarna fari eldri hvítar konur sem hafi keypt sér fylgdarþjónustu yngri manna.
Möguleikarnir í ferðamannaiðnaðinum eru nánast ótakmarkaðir. Var ég kannski búin að segja það?
Gulla - verandi í Afríku