Jólahaldinu að mestu lokið og kjördagur að renna uppVera Rut Ragnarsdóttir

Aðfangadagur var nokkuð hefðbundinn,  börnin stór og smá biðu eftir jólunum sem héldu innreið sína kl. 18 að íslenskum sið.  Borðuðum hunangsgljáða skinku með öllu tilheyrandi sem húsfaðirinn matbjó af list.  Eftirrétturinn var ekki af verri sortinni.  Vera Rut útbjó hvíta "súkkulaðimús" a la Humarhúsið sem bráðnaði á tungunni.  Stelpan er fínn kokkur!

Pakkarnir voru ótrúlega margir og innihaldið gladdi þiggjendur sem gladdi ekki síður gefendur.  Fengum pakka að heiman fyrir tilstilli Bjargar Davíðsdóttur og Halldórs Pálssonar sem komu hingað þann 18. desember.  Ekki amalegt að fá nýja diskinn hennar Helgu Möller til að auka á jólastemninguna.

Á jóladag fengum við góða gesti.  Dagmar Agnarsdóttir og Ómar Valdimarsson sem hafa verið búsett hér í tæp tvö ár þáðu heimboð ásamt 3 fullorðnum börnum sínum – Ómari R., Ella og Agnesi svo og Alex unnusta Agnesar.  Hér í fámenninu getur maður leift sér að bjóða heim á jólunum, fólki sem maður þekkir eingöngu af afspurn.  Fagna áræðinu enda áttum við mjög skemmtilega stund með þeim. 

Á morgun ganga Kenyamenn til forsetakostninga, auk þess sem kosið verður um þingmenn og umdæmisfulltrúa. 

Þetta er að vonum heilmikil framkvæmd enda telur þjóðin öll rúmlega 34 milljónir.  Kjörstaðir munu opna klukkan 6 í fyrramálið og hægt verður að kjósa allt fram til klukkan 6 að kvöldi.  Niðurstöður talninga munu kunngerðar frá hverjum kjörstað fyrir sig þegar talningu verður lokið. 

Þrír frambjóðendur kljást um forsetaembættið.  Kibaki sem hefur setið að völdum síðast liðin 5 ár, Raila Odinga sem var hluti af stjórn Kibaki fyrstu 2 árin sem Kibaki var við völd en var þá settur út af sakramentinu, auk Kalonzo sem á tæpast möguleika á að ná kjöri.  Hann er hins vegar af Kikuyu ættflokknum rétt eins og Kibaki en málefnalega er hann á sömu línu og Raila.  Hér eru ættflokkar það sem greinir menn að frekar en málefni.  Kikuyu er stærsti ættflokkurinn og mætti því ætla að Kibaki ætti sigurinn vísann en svo er ekki þar eð einhverjir Kikuyuar munu kjósa Kalonzo.

Kibaki ku hafa breytt landslaginu hér all verulega en almannarómur segir hann í einhverjum tilvikum hafa ruglast á eigin vasa og þeim opinbera líkt eins og forveri hans Moi, gerði á 24 ára valdatíma sínum.

Samkvæmt skýrslu sem unnin var um meinta spillingu á valdatíma Moi virðist sem ekki færri en þremur milljörðum milljarðar Bandaríkjadala af alþjóðlegum styrkjum hafi verið ráðstafað í þágu forsetans.
http://wikileaks.org/wiki/The_looting_of_Kenya_under_President_Moi
Skýrslu þessari hefur hins vegar verið stungið undir stól og allir málsaðilar sýknaðir enda var Kibaki aðstoðarforseti Moi lengi vel og þeim er vel til vina, jafnvel svo að Moi er yfirlýstur stuðningsmaður Kibaki í yfirstandandi kostningabaráttu.
 
Raila nýtur mikillar hylli og skoðanakannanir spá honum sigri.  Hann lofar meðal annars ókeypis menntun fyrir nemendur í  Secondary School svo og ókeypis heilbrigðisþjónustu líkt og Kibaki en þó án þess að komi til skatthækkana enda muni nógir peningar verða til þegar Kibaki og gæðingum hans hefur verið vísað frá kjötkötlunum, segir Raila.

Nokkurs ótta gætir um að úrslitunum verði hagrætt og hætt við að minnsti grunur um slíkt valdi óeirðum. Á hinn bóginn má vænta hömlulausra fagnaðarláta sem hæglega geta breyttst í andhverfu sína þegar niðurstöðurnar verða kunngjörðar.

Trúlega fer best á því að við dveljum heima við fram yfir helgi.
Gulla - verandi í Afríku - bloggar

Athugasemdir

1
Adda skrifar:
Gleðileg jól kæru vinir. Hér á klakanum fengum við hvít jól, en mér finnst það ekki vera spurningin um hvít , rauð eða græn jól, heldur hvaða tilfinningu maður hefur í hjartanu fyrir jólunum. Kær kveðja Adda og fjölskylda.
27. desember 2007 klukkan 23:17
2
Lilja Birgisdóttirgleðileg jól og gleðilegt nýtt ár
01. janúar 2008 klukkan 23:50
3
Helga og Reynir skrifar:
Gleðilegt nýtt ár. Takk fyrir öll gömlu árin.
Hugsum mikið til ykkar. Gaman að lesa bloggið frá ykkur. Vonandi eruð þið örugg í öllum þessum látum sem virðast vera allt í kring um ykkur. Fréttirnar eru ekkert skemmtilegar.
Gangi ykkur vel.
Kveðja frá okkur hérna í Hafnarfirðinum.
Helga, Reynir, Guðmundur , Nancy, Helga Rún og Hekla Sif( sofandi úti á svölum)
03. janúar 2008 klukkan 13:47

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing