Flóttamenn í TanzaniuVera Rut Ragnarsdóttir

Það blæs ekki byrlega í Kenya þessa dagana.  Fyrir okkur hefur þetta verið mjög sérkennileg lífsreynsla.  Við erum búsett í Runda, einu betri úthverfa Nairobi og hér er í raun ekkert sem gefur til kynna að þjóðin sé á barmi örvæntingar.  Það er ekki fyrr en við förum út úr hverfinu sem við verðum þess áskynja að eitthvað hefur breyttst.  Matatu bílarnir sem eru aðal samgöngutækin í borginni og jafnvel í landinu sjást varla og fáir eru á ferli.  Verslanir eru lokaðar og veitingastaðir sömuleiðis.

Daginn fyrir kostningarnar brunaði ég í búðina en kom að lokuðum dyrum þrátt fyrir þetta væri innan auglýsts verslunartíma.  Ástæðan? Jú, kostningar á morgun og starfsfólkið þarf að komast á kjörstað í tæka tíð.  Nú, nú, svo kom kjördagurinn og þá var lokað, enda fólk að kjósa.  Þann 28. desember var allt með kyrrum kjörum en þann 29. fóru að berast fréttir af niðurstöðum sem voru á skjön við útgönguspár og fyrstu talningar. 

Þar með var tónninn gefinn og þegar Kibaki sór embættiseiðinn í miklum flýti hófst atburðarrás sem heimsbyggðin er fullmeðvituð um.

Það er hreint ótrúlegt að svona hlutir geti átt sér stað.  Í fjölda kjördæma voru kostningarnar „núllaðar“ vegna þess að brögð voru í tafli; kostningarþátttaka um og yfir 100%, kjörkössunum hafði verið stolið eða formaður kjörstjórnar jafnvel horfið af staðnum án þess að talningu væri lokið.  Er nema von að fólk sé vonsvikið.

Og hverjir eru það svo sem verða fyrir barðinu á mótmælunum, jú þeir sem eiga lítið eða ekkert fyrir.  Fólk er svangt, býr við ömurlegar aðstæður, atvinnulaust og rýflega 20% þjóðarinnar eyðnismitaður svo ekki sé talað um aðra sjúkdóma sem þjaka fólk.

Í valdatíð Kibaki hefur árangur náðst á mörgum sviðum en ekki hefur tekist að kveða niður spillingu sem reyndar litar stjórnarfarið í Afríku gjörvallri. Ættbálkaböndin eru sterk og skipta þjóðinni í 42 þjóðarbrot. Kibiaki er Kikuyu en sá ættbálkur er sá fjölmennasti hér.  Er það almennt viðhorf manna að Kikuyu fólk hafi notið góðs af þessum tengslum við forsetann umfram aðra Kenya búa.  Þetta er eitt að því sem Raila hefur höfðað til og fólk hungrar í breytingar.

Kibaki er að sönnu ábyrgur fyrir atburðum síðustu daga en Raila verður ekki hvítþveginn.  Með því að boða ítrekað til mótmælafunda í Nairobi hefur hann óbeint hvatt til ofbeldis.  Raila er „forseti fólksins“ en í hita leiksins er fólkinu fórnað á altari stjórnmálanna.

Það er ljóst að maðkur er í mysunni.  Hugsanlega hefði athygli alþjóðasamfélagsins ekki verið náð nema fyrir þá ofbeldishrinu sem hefur gengið yfir landið.  En nú er mál að linni.
Milljónum hefur verið varið í uppbyggingu ferðamannaiðnaðar í Kenya.  Atburðir síðustu daga hafa gríðarlega áhrif og ekki bara í Kenya, aðrar Afríkuþjóðir eru farnar að svíða.  Bensínskortur er farinn að gera vart við síg í Úganda, Rúanda og Búrundi þar eð Mombasa höfn er lömuð og hefur verið síðustu 6 daga. 

Fyrir okkur er það nánast stofufangelsi að vera heima í Runda.
Við ákváðum því að fara til Tanzaníu og gefa okkur 10-14 daga þar í sól og sumarhita.  Hitastigið hér nær  37° yfir miðbik dagsins þannig að Ragga þykir jafnvel nóg um. 

Erum hér á glæsihóteli, White Sands Hotel á ströndinni rétt norðan við Dar Es Salaam.  Aðstaðan öll er frábær og maturinn fyrsta flokks en það er sitt hvað sem hægt er að kenna Tanzaniu mönnum um þjónustu.  
Meira um það síðar.

Gulla - verandi í Afríku - bloggar

Athugasemdir

1
Adda skrifar:
Hæ hæ! Gott að heyra að þið eruð á öruggum stað núna, ég var farin að hafa nettar áhyggjur af ykkur, en við setjum málið í Drottins hendur og hann sér um sitt fólk. Amen!
Við verðum að trúa því að þessi læti gangi fljótt yfir. Kærar kveðjur til ykkar allra. Adda.
05. janúar 2008 klukkan 00:00
2
Viktor (sem var skylinn eftir) skrifar:
þið fenguð allavega fullt af áramótabrennum, annað en við hérna á íslandi =)

en svona í allvuru gott að vita af ykkur í næsta landi meðan mesta vesenið er.
05. janúar 2008 klukkan 19:02
3
Gugga skrifar:
Sæl öll, ég fylgist spennt með ástandinu í Kenýa eins og það birtist í fjölmiðlum hér heima. Gott af fá svona innherjaupplýsingar líka. Takið því rólega í Tanzaníu. Kveðja Gugga.
07. janúar 2008 klukkan 13:02

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing