myndir af höllinni komnar innVera Rut Ragnarsdóttir
Húsið er í eigu indverskra vina okkar sem greiddu götu okkar umtalsvert þegar við komum, til að mynda með því að leggja okkur til húsnæði, bíl og bílstjóra og það án endurgjalds út október meðan við svipuðumst um eftir dvalarstað.
Við lögðu upp með óskir um húsnæði sem teldi 3 svefnherbergi og svo vildum við eindregið fá útiaðstöðu þar sem hægt væri að njóta veðurblíðunnar. Eftir að hafa fundið íbúð sem mætti þessum kröfum og leigugjaldið ekki alveg út úr korti, kom kostaboð sem ekki varð hafnað og hér erum við enn.
Hér eru 3 svefnherbergi og þessi fína útiaðstaða en húsið að vísu 560 fm :o) það verður skrítið að koma heim í "þrengslin" þegar þar að kemur.
Gulla - verandi í Afríku - bloggar