Gulla - verandi í Afríku - bloggarVera Rut Ragnarsdóttir

Við íslendingar erum vön því að lögreglan sé til að liðsinna hinum almenna borgara samhliða því að halda uppi lögum og reglu.

Hér eru fleiri hliðar á teningnum.

Fyrir nokkru síðan var frúin að spjalla við vinkonu sína í síma samhliða því að aka bifreiðinni.  Það er að sjálfsögðu harðbannað hér í landi eins og víðar í henni veröld.  Glöggskyggn lögregluþjónn varð vitni að athæfinu og okkur var vísað út í kant.  Þar var mér gert að stíga út úr bifreiðinni og færð í sannleikann um að "normal procedure" væri að sakamaðurinn yrði flutt á stöðina þar sem ég yrði vistuð til næsta dags en þá skyldi ég færð fyrir dómara þar sem viðeigandi refsing yrði ákvörðuð.  Mér var nokkuð brugðið og reyndi að bera því við að þetta hefði ég ekki verið meðvituð um enda væri ekki bannað að aka og tala í síma "in my country".  Allt kom fyrir ekki og nú hafði þjónn laganna aðeins eina spurningu og hún var "hvernig getum við leyst þetta?"  Maður hefði nú haldið að ég yrði kannski til að bera þessa spurningu upp en nei.  Ég svaraði því til að ekki vildi ég nú gera illt verra með því að bera á hann fé enda væri það mun alvarlegri glæpur en sá sem ég hefði nú þegar framið, auk þess sem ég ætti ekki nema 500 kall og ekki ætlaði ég að móðga hann með slíkum smápeningum.  Eina sem ég  sæi í stöðunni væri að ég lofaði bót og betrum og myndi aldrei gera þetta aftur.

Hann sá að þarna færi svo einfaldur ferðamaður að hann skyldi ekki að nú hefði átt að rífa upp budduna í stað þess að halda lögregluþjóninum á snakki.  Hann ákvað því að sleppa mér og gaf mér nafnið sitt að skilnaði og sagðist tilheyra Parklandsstöðinni.  Ég átta mig reyndar ekki á því hvaða gagn ég gæti haft af þessum upplýsingum en prísaði mig sæla að sleppa að svo búnu.

Síðast liðinn sunnudag var okkur boðið út að borða á veitingastaðnum Tallisman sem staðsettur er í Karen.  Þetta er glæsilegur staður og maturinn algjör veisla en galli á gjöf Njarðar að hann er í nokkurri fjarlægð frá heimili okkar. Það kom ekki að sök þar sem bílstjórinn okkar var  kominn úr helgarfríi og beið okkar því þegar við höfðum notið veislufanganna.  Á leiðinni heim keyrðum við fram á vegatálma.  Þetta er hluti af eftirlit með flutningi á hvers konar farmi.  Lögregluþjónninn var mikill að vexti auk þess sem hann var vopnaður hríðskotabyssu.  Hann hafði það helst við okkur að athuga að einhverjir af farþegunum væri ekki með spennt bílbeltin og vildi að við reiddum af hendi 3000 kall. Frúnni datt í hug að reyna að milda ástandið og stökk útúr bílnum en það hefði ég betur látið ógert því mér var gert það ljóst að hann hefði ekkert við mig að tala og ég skyldi snauta mér inn í bílinn aftur.  Hann rétti höndina inn í bílinn og danglaði ítrekað í brjóstið á bóndanum meðan hann áréttaði að hann vildi fá sektina greidda núna.  Staðan var reyndar sú að við áttum ekki nema 2000 kall og sáum hann hverfa í vasa hins styrka varðar laganna.

Við áræddum ekki að biðja um kvittun enda hætt við að þá hefðum við verið flutt á stöðina með tilheyrandi málavafstri fram eftir nóttu.  Ekki vænti ég þess þó að hann hafi skilað þessum aurum til hins opinbera.

Í framhaldi af þessum viðskiptum við lögregluna fyllum við hóp löghlýðinna borgara sem spenna beltin og tala ekki í síma samhliða því að stýra bifreið.

TILGANGURINN HELGAR MEÐALIÐ, eða hvað? 

=)Vera Rut Ragnarsdóttir

hææj :D...

byrja á því að óska Ellu okkar innilega til hamingju með afmælið og nýja húsið líka. ;*

Jakob er núna komin í jólafrí og gekk allveg æðislega vel á jólaprófunum, bara a og b, erum rosa stolt af honum :)
svo fórum við systkinin í bíó og svo heim.

laugardaginn:
fóru mamma, pabbi og Jakob í sarit center sem er bara verslunarmiðstöð á meðan ég var á söngæfingu og svo fórum við bara heim og hafa kósí svona fjölskildan saman =)
á sunnudagin:
fórum víð í kirkjuna og svo fórum við Jakob í keilu og biljart og mamma og pabbi á River Café og svo fórum við út að borða með Önnu og Sigurrósu og það var allveg æði, þökkum kærlega fyrir okkur... :)...
svo í dag:
fórum við mamma uppí saveto, sem er eitt af slömmunum hér og hittum Beldu og börnin hennar og vorum aðeins að spjalla við hana og ég að skoða búðina hennar, ofboðslega flott hjá henni... koma myndir af þessu seinna :)...

þetta er nú það eina sem hefur gerst hjá okkur...
en svo erum við að fara núna í vikunni til mt.kenya með önnu og sigurrósu i safarí, blogga svo frá því þegar að við komum heim úr því...

eeen ætla að segja þetta fínt núna og skrifa svo aftur bráðum...
er alltaf að reyna að redda þessum blessuðum mynum 1100 myndir sem þetta er .... !

-VeraRut

jćja jáVera Rut Ragnarsdóttir

ætla nú að byrja þetta blogg á því að afsaka blogg leysið mitt..

buin að vera frekar löt eitthvað..

en það helsta sem er að frétta er það að við erum loksins búin að fynna okkur kyrkju hér sem er hvítasunnukyrkjan i Nairobi, parklands... kann ekki að stafa allt nafnið...
og ég er að byrja í lofgjörðar hópnum þar, búin að kinnast fullt af frábærum krökkum þar...
svo um á laugardaginn voru við með matarboð fyrir þórunni, sammy, sigurrósu, önnu, geroge og vin hanns sem ég man alldrei nafnið á !
og svo gisti anna og sigurrós hér, var voða gaman að fá þær í heimsókn :D
en svo er Jakob í prófum og held að honum gangi bara ágætlega, bekkurinn hans þurfti að taka stæ prófið aftur, eða allir nema hann þar sem að hann var eini sem náði ! erum ótrúlega stolt af honum..

og svo kemur að myndamálunum!
ég er loksins búin að setja þær inní tölvuna en nei, þá er ekki hægt að setja þær á netið, talvan frís alltaf bara eða dettur út netið...
en það þarf að laga þetta eitthvernveginn því að við viljumnú sýna öllum hvernig þetta er hjá okkur...

ætla aðeins að segja í grófumáli hvað við erumað gera hérna..
pabbi er með svona hópakennslu ðea þannig, bara aðeins að tala við strákana 2x í viku og það er allt að starta sér...
Mamma og ég erum að hjálpa mæðrum barnanna að koma undir sig fótunum, erum búin að opna þarna eina búð sem gengur allveg framar vonum sko og mamma allveg að springa úr stolti útaf því
og svo er jakob auðvita bara í skólanum..
en svo í næstu viku eru Anna búin að plana föndur og leiki og eitthvað svona skemtilegt fyrir krakkana þar sem þau eru öll að fara í jólafrí sem byrjar held ég 1 des

þannig að allt er búið að ganga ótrúlega vel.
búum í risa húsi í hverfi sem heitir Runda og er svona 15-20 mín frá skolanum hans Jakobs og svona 40 mín frá Donholm þar sem barnaheimilin eru..

svo núna eru forseta kostningar í gangi og er baráttan helst á milli Kibaki núverandi forseta og Ræla kann ekki allveg að skrifa nafnið en þú segir það allveganna svona...

en held ég ætla að hætta í bili bara láta vita að við erum ennþá á lífi... :D

jćjs orđiđ svoldiđ síđan viđ blogguđum síđastVera Rut Ragnarsdóttir

hhæ
gaman að' vita að það er eitthver sem er að fylgjast með okkur hér í nairobi
síðustu dagar hafa verið mjög annasamir.
ég er búin að vera bara uppí barnaheimili að huxa um krakkana þar, en mamma og pabbi eru komin í það starf að ætla að hjálpa mömmunum að koma undir sig löppunum og allt gengur vel við það, fyrsta búðin oppnuð og þá er konan að selja parafin olíu og sápur, nammi ogsvoleiðis voða gaman að sjá hvernig það á ftir að ganga.
svo er jakob allveg að brillera í skólanum og á flut að nýjum vinum þar og líkar þetta allt bara ofboðslega vel.

Svo erum við búin að kaupa okkur snúru fyrir myndavélina svo við getum farið að setja myndir inn bráðum.

en ætla að hafa þetta stutt nuna og skrifa aftur i vikunni ! :)

-VeraRut

loksins komin til nairobiVera Rut Ragnarsdóttir

jæja þá erum við loksins komin til nairobi erum búin að vera hérna í viku og ekki búin að gera rosalega margt bara þríf okkur inní húsið okkar þar sem að það er bara nýbyggt og allt í ryki og ógeði, en svo í dag fengum við loksins internetið svo að við getum byrjað að blogga meira.
en fórum uppí donholm til krakkarnaa i fyrradag ótrúlega gaman að fara þangað, en svo á mánudaginn byrjar JakobVífill í skólanum hér sem heitir kestrel manor school og er það svona 15 min keyrsl frá Runda þar sem við búum og ég byrja þá lika á fullu í abc.
en þetta er nú það helsta sem er að gerast í augnablikinu svo ég ætla að hætta núna og læt svo heyra í mér í bráð :)
-VeraRut .... og fjölskylda

Allt ađ gerastVera Rut Ragnarsdóttir

jæja vá þetta er allveg allt að gerast bara 3 tímar í það að við leggjum á stað til keflavíkur :D... förum i loftið 7.45 og þá til london og ætlum að vera þar í einanótt og þá förum við til brussel og svo loks til nairobi...
 
en jæja ætlaði bara að láta vita hvað væri að gerat set nýtt inn þegar við komum út :D...

Kenyafararnir 4

AFríka eftir 6 dagaVera Rut Ragnarsdóttir

heil og sæl

ætla bara svona aðeins að láta vita svona hver við erum.
en það er Raggi, Gulla, VeraRut og JakobVífill°.
og ég Vera ætla víst að vera bloggarinn í þessari ferð.
en það er sko þannig að við erum að flytja til Afríku í 1 ár og ætlum að vera í nairobi, kenya, og ætlum að fara í ABC Barnahjálp.
en ætla að láta þetta gott heita í bili :D

-VeraRut

Ađalvalmynd

Auglýsing